Ólafía Þórunn og Thomas gengu í hjónaband

Fyrrverandi atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Thomas Bojanowski, gengu í …
Fyrrverandi atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Thomas Bojanowski, gengu í hjónaband í Fríkirkjunni í Reykjavík.

Fyrrverandi atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Thomas Bojanowski gengu nýverið í hjónaband við fallega athöfn í Fríkirkjunni í Reykjavík. 

Nýgiftu hjónin birtu fallegt myndband frá deginum í sameiginlegri færslu á Instagram þar sem þau þökkuðu gestum fyrir að gera daginn ógleymanlegan. Eftir athöfnina í Fríkirkjunni var ferðinni heitið í Iðnó þar sem hjónin skemmtu sér konunglega fram eftir kvöldi ásamt brúðkaupsgestum.

„Takk öll fyrir að gera daginn okkar einstakan!! Við erum svo heppin að vera umkringd svona ótrúlegu fólki. Brúðkaup er eitt af fáum viðburðum í lífinu þar sem allt fólkið sem þú elskar kemur saman á einum stað og það var súrrealískt að allir hafi safnast saman á Íslandi! Takk takk takk!!,“ skrifuðu þau í færslunni.

Varð tveggja barna móðir í febrúar

Ólafía Þórunn var í atvinnumennsku í golfi í átta ár og var meðal annars valin íþróttamaður ársins 2017, fyrst kylfinga.

Hjónin eiga tvö börn saman, soninn Maron Atlas sem kom í heiminn árið 2021 og soninn Alexander Noel sem kom í heiminn í febrúar síðastliðnum. 

Smartland óskar þeim innilega til hamingju með ástina!

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir gekk í hjónaband með Thomasi Bojanowski.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir gekk í hjónaband með Thomasi Bojanowski. mbl.is/Óttar Geirsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál