Sunna Rún Heiðarsdóttir læknir og Emil Pálsson, fyrrverandi knattspyrnumaður, eru orðin hjón. Þau fögnuðu því með sínum allra nánustu í gær, mánudag, þar sem þau buðu upp á glæsilega köku og búbblur með því.
Sunna deildi gleðifregnunum með fylgjendum sínum á Instagram. „Þá er það lögfest. Við Emil erum ekkert fyrir það að bíða með hlutina,“ skrifaði hún við fallega mynd af nýgiftu hjónunum.
Sunna og Emil opinberuðu samband sitt sumarið 2022. Ári síðar eignuðust þau sitt fyrsta barn saman, soninn Óliver Emilsson, sem kom í heiminn 23. júní 2023.
Í ágúst 2022 greindi Emil frá því að hann hefði lagt fótboltaskóna á hilluna eftir að hafa tvisvar farið í hjartastopp, annars vegar í leik með Sogndal í Noregi og hins vegar á æfingu með FH.
Emil hélt út í atvinnumennsku árið 2017 og spilaði með Sandefjord, Sogndal og Sarpsborg í Noregi. Þá lék hann einn A-landsleik gegn Sameinuðu arabísku furstadæmunum árið 2016 og á að baki 123 leiki í efstu deild hér á landi.
Smartland óskar þeim innilega til hamingju með ástina!