Leynibrúðkaup Árna Odds og Kristrúnar fór fram um kvöldmatarleytið

Árni Oddur Þórðarson og Kristrún Auður Viðarsdóttir gengu í hjónaband …
Árni Oddur Þórðarson og Kristrún Auður Viðarsdóttir gengu í hjónaband í Dómkirkjunni um kvöldmatarleitið í dag. Ljósmynd/Baldur Kristjánsson

Árni Oddur Þórðarson, viðskiptamaður og fyrrverandi forstjóri Marel, og Kristrún Auður Viðarsdóttir fjárfestir gengu í hjónband í Dómkirkjunni í kvöld. Það var séra Sveinn Valgarðsson prestur sem gaf parið saman. Bubbi Morthens söng á sinn töfrandi hátt í athöfninni og heillaði viðstadda. 

Það má eiginlega að segja að um leynibrúðkaup hafi verið að ræða því veislugestir höfðu ekki hugmynd um hvað til stæði. Kristrún, sem fagnar 50 ára afmæli í dag, bauð til veislu af því tilefni á heimili Árna Odds við Sólvallagötu í Reykjavík. Rétt eftir að gestir mættu var farið í ratleik sem endaði í Dómkirkjunni. 

Afmælisveislan breyttist í brúðkaup

Séra Sveinn Valgeirsson gaf brúðhjónin saman en hann er einn af virtustu prestum landsins. Eftir giftinguna sjálfa var haldið í Marshall-húsið þar sem veislan stendur yfir. 

Árni Oddur og Kristrún byrjuðu saman, eins og sagt er, haustið 2022 og hefur ástin vaxið og dafnað síðan þá. Eðlilegt framhald af ást sem stækkar og vex er að sjálfsögðu að ganga í hjónaband og það gerðu þau Árni Oddur og Kristrún í dag eftir nokkurra mánaða trúlofun.

Smartland óskar Árna Oddi og Kristrúnu til hamingju með hjónabandið! 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál