Fundu hvort annað á dansgólfinu fyrir þremur árum

Ryan Amor og Tanja Ýr Ástþórsdóttir eru búin að vera …
Ryan Amor og Tanja Ýr Ástþórsdóttir eru búin að vera eitt í þrjú ár. Ljósmynd/Instagram

Áhrifavaldurinn og viðskiptakonan, Tanja Ýr Ástþórsdóttir, og Ryan Amor, hermaður í breska hernum, fagna því í dag að vera búin að vera kærustupar í þrjú ár. Parið kynntist á þessum degi fyrir þremur árum þegar hún bað hann um að dansa við sig. Sá dans stendur enn þá yfir. 

„Fyrir þremur árum síðan labbaði ég upp að Ryani og spurði hvort hann vildi dansa við mig. Kvöld sem ég er einstaklega þakklát fyrir,“ segir Tanja Ýr á Instagram-síðu sinni. 

Parið á von á barni saman og hefur Tanja Ýr masterað meðgöngustílinn sinn. 

Tanja Ýr komst á blað í íslensku pressunni þegar hún var valin Ungfrú Ísland árið 2013. Síðan þá hefur hún unnið í markmiðum sínum að festu. Einn liður í því að stækka var að flytja til Bretlands til að elta draumana sína. Hún rekur fyrirtæki í kringum sig sem heitir í höfuðið á henni en þar býður hún upp á ráðgjöf um samfélagsmiðla, selur gervihár og heldur netnámskeið. Í fyrra keyptu hún sér hús í Manchester ásamt kærastanum og verðandi barnsföður. 

Smartland óskar parinu til hamingju með árin þrjú! 

View this post on Instagram

A post shared by T A N J A Ý R (@tanjayra)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál