Andlát: Helga Mogensen

Helga Mogensen lést í gær sjötug að aldri.
Helga Mogensen lést í gær sjötug að aldri.

Helga Mogensen, matarfrömuður og frumkvöðull, lést sunnudaginn 29. september á líknardeild Landspítalans í Kópavogi, sjötug að aldri.

Helga Mogensen fæddist á Selfossi 12. apríl 1954 en flutti til Reykjavíkur á unglingsaldri. Foreldrar hennar voru Helge Mogensen mjólkurbúfræðingur og Þórunn Málfríður Jónsdóttir kaupmaður.

Helga bjó um árabil í Danmörku þar sem hún kynntist og tileinkaði sér grænmetisfæði sem og jógaiðkun sem hún stundaði reglulega og kenndi. Auk þess lærði hún þar óhefðbundnar lækningar. Á níunda áratugnum fór hún til frekara náms í jógafræðum og iðkun á Kripalu-jógastöðinni í Massachusetts í Bandaríkjunum og opnaði seinna jógastöðina Heimsljós ásamt vinum hér heima á Íslandi, og kenndi síðar víða jóga, þar á meðal í Kramhúsinu.

Helga var í hópi helstu brautryðjanda á sviði uppbyggingar og reksturs grænmetisveitingastaða í Reykjavík og má í því samhengi nefna veitingastaðinn Á næstu grösum sem hún ásamt vinum opnaði árið 1978 og rak um árabil, og síðar heilsuveitingastaðina Krúsku og Maður lifandi.

Mataruppskriftir Helgu njóta mikilla vinsælda en þær hafa birst víða, m.a. í matreiðslubókum og á matseðlum veitingahúsa og mötuneyta, en Helga hefur hannað margvíslegar uppskriftir úr íslensku hráefni fyrir garðyrkjubændur og samtök þeirra. Þá rak Helga um tíma hádegisverðarþjónustu fyrir vinnustaði og hóf árið 2013 framleiðslu á hollusturéttum undir merkjunum Kræsingar frú Mogensen sem nutu mikilla vinsælda um land allt. Síðustu árin starfaði Helga á veitingastofu Hringsins á barnaspítalanum við Hringbraut og hlúði þar bæði að starfsfólki og gestum og gangandi með hollustufæði í fyrirrúmi.

Helga ferðaðist um víða veröld, ávallt í leit að aukinni þekkingu og skilningi sem hún margnýtti í starfi sínu og lífi.

Helga lætur eftir sig tvær dætur, Ylfu Edith Fenger og Hönnu Eiríksdóttur Mogensen og fimm barnabörn ásamt ríkulegri arfleifð á sviði hollustu, heilsu og næringar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Linda Sigríður Baldvinsdóttir
Linda Sigríður Baldvinsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál