Fatahönnuðurinn Guðmundur Jörundsson og leikmyndahönnuðurinn og myndlistarmaðurinn Elín Hansdóttir eru nýtt par.
Guðmundur hefur verið áberandi í íslensku tískulífi en hann hefur bæði rekið sitt eigið fatamerki, JÖR, og rekið veitingastaðinn Nebraska sem var líka fataverslun.
Elín hefur gert það gott í íslensku leikhúslífi síðustu ár en hún lærði í Listaháskóla Íslands og útskrifaðist þaðan 2003. Þá hélt hún til Berlínar þar sem hún náði sér í Magisterpróf í KHB-Weißensee. Elín gerði til dæmis leikmyndina fyrir Saknaðarilm í Þjóðleikhúsinu sem byggð er á sögu Elísabetar Jökulsdóttir. Því var fagnað í vikunni að búið væri að sýna 50 sýningar af stykkinu.
Hún gerði líka leikmynd fyrir stykkið Vertu úlfur sem sýnt var í Þjóðleikhúsinu en fyrir verkið hlaut hún Grímuverðlaunin 2021 svo einhver verk séu talin upp.
Það má því segja að hér sé listrænt par á ferð!
Smartland óskar þeim til hamingju með ástina!