Ómar R. Valdimarsson, lögmaður á lögmannsstofunni Valdimarsson, er kominn með kærustu. Sú lukkulega heitir Eva Margrét Ásmundsdóttir og er fasteignasali hjá Croisette.
DV greindi frá því að parið væri að hittast og hefði farið saman á árshátíð Valdimarsson sem haldin var í Berlín á dögunum.
Ómar var áður kvæntur Margréti Ýr Valdimarsdóttur kennara og eiganda Hugmyndabankans. Þau bjuggu í fallegu húsi í Garðabænum sem var sett á sölu í kjölfar skilnaðarins.
Eftir skilnaðinn festi Ómar kaup á íbúð við Laufás 3 í Garðabæ og greiddi fyrir hana 83.500.000 kr. Hann er skráður 90% eigandi íbúðarinnar á móti 10% hlut Esja Legal ehf. sem er félagið sem rekur Valdimarsson lögmenn. Íbúðin er 144,1 fm að stærð og var húsið reist 1962.
Í kjölfarið hefur Ómar breytt ýmsu í sínu lífi en á dögunum auglýsti hann forlátan Eames-stól til sölu vegna plássleysis.