Arna Magnea Danks og Magdalena fundu ástina

Arna Magnea Danks og Magdalena Lukasiak eru að hittast.
Arna Magnea Danks og Magdalena Lukasiak eru að hittast. Samsett mynd

Arna Magnea Danks, leikkona, bardagahönnuður og kennari, hefur skráð sig í samband á Facebook. Hún uppfærði sambandsstöðu sína á samfélagsmiðlasíðunni þann 11. nóvember síðastliðinn.

Sú heppna heitir Magdalena Lukasiak og starfar sem ljósmyndari og blaðamaður hjá Gay Iceland. Magdalena tók viðtal við sína heittelskuðu í byrjun september fyrir tímaritið.

Töluverður aldursmunur er á parinu, eða 18 ár, en eins og sagt er þá spyr ástin ekki um aldur.

Magdalena Lukasiak.
Magdalena Lukasiak. Ljósmynd/Kat Deptula

Arna Magnea kom út úr skápnum sem trans kona árið 2018 og ræddi opinskátt um líf sitt við blaðamann Smartlands fyrr á árinu.

Hvernig var að stíga fyrstu skref­in sem Arna?

„Það var rosa­leg­ur létt­ir, bara gíf­ur­leg­ur létt­ir að fá að vera ég sjálf og ekki í nein­um felu­leik. Það er svo lýj­andi og þreyt­andi að vera að ljúga að sjálf­um sér og öll­um öðrum í leiðinni. Allt það var nú horfið. Þetta leik­rit var á enda, ég hafði leng­ur ekk­ert að fela. Það er ólýs­an­legt frelsi.“

Arna Magnea Danks.
Arna Magnea Danks. Ljósmynd/Sunna Ben

Arna Magnea varð landsþekkt á einni nóttu þegar kvikmyndin Ljósvíkingar, í leikstjórn Snævars Sölva Sölvasonar, var frumsýnd í byrjun september. Hún hefur hlotið mikið lof meðal almennings og gagnrýnenda fyrir hlutverk sitt sem veitingamaðurinn Björn sem kemur út úr skápnum sem trans kona að nafni Birna.

Smartland óskar parinu hjartanlega til hamingju með ástina!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda