Vikan á Instagram var fjörug. Instagramverjar eru komnir í jólaskap og gerðu ýmislegt til þess að komast í sanna jólastemningu. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir bakaði sörur með Friðriku Hjördísi Geirsdóttur, Rikku, heima hjá Svanhildi Nönnu Vigfúsdóttur fjárfesti. Þar var líka Ólöf Skaftadóttir hlaðvarpsstjarna í Komið gott sem hélt uppi stuðinu.
Elísa Gróa Steinþórsdóttir fór í netasokkabuxur og setti upp andlitið.
Nadía Sif Líndal fór norður til Akureyrar og naut aðventunnar.
Jón Jónsson tónlistarmaður í IceGuys þakkaði fyrir frábæra tónleikahelgi en hljómsveitin fyllti Laugardalshöllina nokkrum sinnum um helgina. Einhverjir myndu segja að allir og amma þeirra hafi verið á tónleikunum eða svo gott sem.
Jón Gnarr, grínisti og þingmaður Viðreisnar, setti inn mynd af sér á Alþingi undir yfirskriftinni „starfsmaður í þjálfun“ og nokkuð ljóst að hann er að undirbúa sig fyrir nýtt hlutverk og komandi átök.
Hlaðvarpsþáttur Sólrúnar Diego, Guðríðar Jónsdóttur og Línu Birgittu, „þrjár með öllu“ var í beinni útsendingu síðastliðinn föstudag með fullan sal af áhorfendum.
Áhrifavaldurinn Sunneva Eir Einarsdóttir komst í kjólinn fyrir jólin og var sæt í rauðum, hlýralausum pallíettukjól.
Söngkonan Svala ákvað að verða enn sætari og fór í húðþéttingu á kjálkasvæði til að verða óaðfinnanleg um jólin.
Fanney Ingvarsdóttir, markaðsfulltrúi Bioeffect og fyrrverandi fegurðardrottning, og unnusti hennar Teitur Páll Reynisson, eyddu ljúfum degi í miðbæ Reykjavíkur.
Tanja Ýr Ástþórsdóttir, athafnakona og samfélagsmiðlastjarna, bíður spennt eftir barni.
Dansarinn Sóley Bára Þórunnardóttir birti skemmtilega myndaseríu frá tónleikum IceGuys í Laugardalshöll.
Tónlistarundrið Laufey Lín Bing Jónsdóttir gaf fylgjendum sínum innsýn inn í síðustu daga og birti meðal annars mynd af sér í tannlæknastólnum.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir bjó til gómsætar sörur ásamt Friðriku Hjördísi Geirsdóttur, sem alltaf er kölluð Rikka, og líka með Önnu Þorbjörgu Jónsdóttur fjárfesti og ofurskvís. Baksturinn fór fram í einu af glæsilegustu húsum landsins en þar býr Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir fjárfestir. Hún setti húsið á sölu á dögunum en það er óselt.
Rapparinn Emmsjé Gauti átti stund milli stríða þegar hann náði smá slökun í Laugar Spa ásamt góðum vini. Hann er á fullu þessa dagana að undirbúa hátíðartónleika sína Jülevenner og því kærkomið að geta náð áttum í gufunni.