Húðdroparnir komnir til Hollywood

John Travolta og eiginkona hans, Kelly Preston.
John Travolta og eiginkona hans, Kelly Preston. GUS RUELAS

Leikkonan Kelly Preston, eiginkona John Travolta, keypti íslenska húðdropa frá Sif Cosmetics á ferð sinni í Leifsstöð síðasta fimmtudag.

Hún var á ferð með eiginmanni sínum, John Travolta, en þau stoppuðu á Íslandi til að taka eldsneyti. Að sögn Víkurfrétta er John Travolta mikill flugáhugamaður og flaug hann sjálfur vél Qantas-flugfélagsins af tegundinni Boeing 707. 

Í Víkurfréttum segir:

„Flugvélin var staðsett á flughlaðinu hjá Suðurflugi á austursvæði Keflavíkurflugvallar en á meðan eldsneyti var sett á vélina fór John Travolta ásamt föruneyti í Flugstöð Leifs Eiríkssonar þar sem hann verslaði íslenskan varning. Af Facebook-færslum að dæma keypti hann mikið af fatnaði í verslun 66°Norður í Leifsstöð.“

Brynja Magnúsdóttir sölustjóri hjá Sif Cosmetics segir að Kelly Preston hafi keypt glas af húðdropunum af starfsmanni Fríhafnarinnar.

„Það er ánægjulegt að húðdroparnir séu nú komnir til Hollywood.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda