Ofurfyrirsæta dásamar Bláa Lónið í Vogue

Elettra Rossellini Wiedemann.
Elettra Rossellini Wiedemann. mbl.is/Vogue

Fyrirsætan Elettra Rossellini Wiedemann fer fögrum orðum um Bláa lónið í viðtali við septemberhefti ameríska Vogue.

Elettra Rossellini Wiedemann er dóttir Isabellu Rossellini og barnabarn leikkonunnar Ingrid Bergman. Í Vogue segir hún frá sumarfríi sínu og þar kemur í ljós að hún eyddi því á Íslandi.

„Að sitja í heitum jarðsjónum sem er ríkur af steinefnum, kísil og þörungum sem næra húðina lét mig finnast sem ég væri í raun afkastamikil á letidegi. Hverjum hefði dottið í hug að það væri hægt að njóta útsýnis og að draga úr öldrun á sama tíma.“

Elettra er fyrirsæta og er andlit Lancome-snyrtivörurmerkisins.

mbl.is/Vogue
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda