Kynlífið skapaði vinsældir

Sigurlaug Gissurardóttir og Íris Gunnarsdóttir.
Sigurlaug Gissurardóttir og Íris Gunnarsdóttir.

Vefurinn Femin.is var opnaður fyrir 11 árum. Á þeim tíma voru ekki margir íslenskir afþreyingarvefir í gangi. Stofnendur vefsins eru Íris Gunnarsdóttir og Soffía Steingrímsdóttir. Í dag rekur Íris vefinn ásamt Sigurlaugu Gissurardóttur. Hún segir að vefurinn hafi verið í níu mánuði í vinnslu og hugmyndin hafi verið mun minni í sniðum en síðar hafi orðið raunin.

„Við fórum af stað með femin.is aðallega til að safna saman upplýsingum um það sem við töldum að konur hefðu áhuga á að lesa um og það væri aðgengilegt á einum stað. Flest efni á femin er tímalaust og málefni sem snerta okkur flestar eins og upplýsingar sem tengjast heilsu, börnum, barnauppeldi, meðgöngu, mataruppskriftum og síðast en ekki síst rómantíkinni og kynlífinu. Netverslun femin.is er nú með yfir 6.000 vörunúmer en ég hafði sjálf keypt í netverslunum erlendis á þessum tíma og fannst það bæði skemmtilegt og þægilegt.“

Á þessum tíma voru margir á því að netið væri bara bóla eins og frægt er orðið. Var ekkert erfitt að fóta sig á þessum vettvangi?

„Já, þetta var einmitt á þessum tíma sem vefir litu dagsins ljós og hurfu jafnharðan. Ég neita því ekki að oft var þetta ekki dans á rósum. Þolinmæði þrautir vinnur allar og það var ekki í boði að gefast upp enda hef ég óbilandi trú á mætti netsins og tækifærunum sem felast þar," segir Íris.

Varð strax mikil traffík?

„Já, það varð strax gríðarleg traffík og miklu meiri en við bjuggumst nokkurn tímann við.  Við vorum á þeim tíma meðal fimm mest heimsóttu vefjum landsins í góðum félagsskap www.mbl.is, www.visir.is, www.leit.is, og www.simaskra.is

Hvers vegna varð femin.is svona vinsæll vefur? 

„Ég held að það hafi verið af ýmsum ástæðum. Í fyrsta lagi var þetta fyrsta kvennasíðan með skemmtilegum og fróðlegum pistlum á einum stað á netinu og jú svo varð spjallið gríðarlega vinsælt. Við skrifuðum bæði fræðilegar, skemmtilegar og opnar greinar um kynlíf og teljum okkur hafa opnað umræðuna á þeim vettvangi. Umræða um kynlíf hefur breyst gríðarlega síðastliðin 10 ár og konur almennt ekki eins feimnar að tjá sig um slík mál.  Við vorum sennilega fyrsta netverslunin sem var með í boði unaðsvörur ástarlífsins sem gott er að geta keypt á netinu og vakti það bæði gríðarlega athygli og lukku meðal margra.“

Í dag er vefurinn svolítið öðruvísi en hann var í upphafi. Hvert stefnir femin.is í dag?

„Já, hann er töluvert ólíkur þeim fyrsta,  sérstaklega þó hvað útlit varðar. Efnistök eru þau sömu eða svipuð og netverslun femin.is er undirstaða reksturs femin.is í dag.  Við stefnum að því að efla efnistök og netverslun jafn og þétt og markmiðið er að reka fyrirtæki sem við getum verið stoltar af og aðrir geta notið góðs af.  Við tökum eitt skref í einu og höfum gaman af.  Netið bíður upp á svo óteljandi mörg tækifæri svo framtíðin er björt.  Í tilefni afmælisins eru í boði fjölmörg sexý tilboð í netverslun og þess virði að kíkja,“ segir Íris.

CHAIWAT SUBPRASOM
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda