Fyrsti þáttur af Hamskiptum

Fyrsti þátturinn af nýrri þáttaseríu á Mbl sjónvarpi, Rokk og rúllur, hefur verið frumsýndur. Í þáttunum, sem bera yfirskriftina Hamskipti, mun Ásgeir Hjartarson taka stíl sex einstaklinga í gegn, út frá hári, förðun og fatnaði.

Rakel Ósk er í fyrsta þættinum færð í „rokkaðri“ mynd en framundan eru þættir þar sem konur og karlar fá aðstoð Ásgeirs við útlitslegar breytingar. „Ég er að breyta einstaklingunum án þess að þeir missi sinn persónulega stíl,“ segir Ásgeir sem lofar að áhorfendur muni geta nýtt sér ýmis góð ráð er fram koma í þættinum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda