Ítalska tískuhúsið GUCCI sýndi haust- og vetrarlínu sína fyrir næsta haust á tískuvikunni í París. Það sem kom á óvart er að stígvélin eru að koma sterk inn aftur eftir smáhlé. Síðan í haust hafa ökklaskór verið meira áberandi en nú eru stígvélin að gera allt vitlaust á ný. Ekki vill GUCCI eingöngu hafa kvenpeninginn í svörtum leðurstígvélum heldur koma slönguskinnsstígvélin alveg tryllt inn í haust.
Það er svolítið langt síðan slönguskinnið var málið síðast - ætli það hafi ekki verið á árunum 1999-2000 sem það gerði allt vitlaust. En nú kveður við annan tón. Það verður engin kona með konum nema að hleypa slönguskinninu inn í líf sitt á ný. Og svo eru litirnir fallegir. Ljósbleikar kápur, hlébarðamunstur og gular leðurtöskur verða áberandi. Miðað við þetta allt er bara fáránlega gott haust í vændum.
Stígvél með snákaskinnsmunstri verða vinsæl næsta vetur.
mbl.is/AFP
Fáránlega smart bleik tvíhneppt kápa.
mbl.is/AFP
Há stígvél voru áberandi hjá GUCCI þegar sýnd var haust- og vetrartíska næsta veturs.
mbl.is/AFP
Elisabeth Erm sýnir haust- og vetrarlínu GUCCI 2014.
mbl.is/AFP
Kjólar við stígvél er áberandi hjá GUCCI.
mbl.is/AFP
Frida Giannini yfirhönnuður GUCCI.
mbl.is/AFP
Allar í stígvélum.
mbl.is/AFP
Gulur litur kemur sterku inn.
mbl.is/AFP
Það er nettur sixtís fílingur í línunni.
mbl.is/AFP
Kjóll við há stígvél er málið.
mbl.is/AFP
Pínu bert á milli.
mbl.is/AFP
Blár pels við gallabuxur.
mbl.is/AFP
Blár kjóll við blá slönguskinnsstígvél.
mbl.is/AFP
Brúnt og grænt mætast hér.
mbl.is/AFP
Gult skal það vera.
mbl.is/AFP
Bette Franke sýndi fyrir GUCCI.
mbl.is/AFP
Bleikur er liturinn.
mbl.is/AFP
Hlébarðapils við hlébarðaskyrtu.
mbl.is/AFP
Gul taska við hlébarðabuxur.
mbl.is/AFP
Og svo er leðrið alltaf heillandi.
mbl.is/AFP
Meira hlébarða.
mbl.is/AFP