Charlize Theron telur að konur séu upp á sitt besta þegar þær ná fimmtugsaldrinum, að því er tímaritið Women's Wear Daily greinir frá.
Leikkonan segist verða öruggari í eigin skinni því eldri sem hún verði en hin 39 ára leikkona er í sambandi með leikaranum Sean Penn, sem er 54 ára.
Charlize Theron segir ennfremur að fólk sem er nýskriðið á þrítugsaldurinn hafi ekki hugmynd um hvað lífið snýst og henni finnst að snyrtivöruiðnaðurinn ætti að einbeita sér að eldri konum en þær sem eru rétt orðnar tvítugar.
Charlize Theron á tveggja ára gamlan son, Jackson, sem hún ættleiddi árið 2012 en hún og Sean Penn hafa verið saman síðan í byrjun árs 2014.
Um karlmenn sagði leikkonan að þeir séu eins og vín, því eldri sem þeir verða, því betri verða þeir.