Stjörnurnar eru alltaf undir smásjá aðdáenda sinna og komast sjaldan upp með að fara í fegrunaraðgerðir án þess að valda fjölmiðlafári. Hérna er listi yfir nokkrar stjörnur sem hafa láti breyta sér á einn eða annan hátt og viðurkenna það.
Iggy Azalea: Tónlistakonan viðurkennir að hafa farið í brjóstastækkun á seinasta ári. Hún hafði hugsað um aðgerðina lengi vel og lét loksins vaða í lok seinasta árs.
Julie Chen: Fréttakonan Julie Chen hefur greint frá því að yfirmenn hennar hvöttu hana á sínum tíma til að láta breyta útliti sínu svo að hún næði lengra í fréttamennskunni. Hún hlustaði á þá og lét meðal annars stækka augu sín og minnka nef sitt.
Courtney Stodden: Raunveruleikastjarnan lét stækka brjóst sín töluvert. „Ég lét stækka brjóst mín í stærð DD og ég er ánægð,“ sagði Stodden í viðtali við E! News.
Farrah Abraham: Teen Mom-stjarnan hefur látið „laga sig“ töluvert síðan hún varð fræg. Abraham hefur látið breyta nefi sínu og höku og stækka brjóst sín.
Amanda Bynes: Hefur talað opinskátt um sínar fegrunaraðgerðir á Twitter. Hún hefur meðal annars greint frá því að hún gekkst undir tvær nefaðgerðir fyrir nokkrum árum. Þá sagðist hún njóta þess að leggjast undir hnífinn.
Ashlee Simpson: Hún hefur sjálf aldrei viljað tjá sig um nefaðgerðina sem hún gekkst undir á sínum tíma en faðir hennar, Joe Simpson, hefur talað um aðgerðina í viðtali við Fox News. „Stelpur hafa sínar eigin hugmyndir. En hún átti erfitt með að anda með nefinu og það var lagað.“
Ashley Tisdale: Viðurkennir að hafa látið breyta nefi sínu árið 2007, þá var hún rétt orðin 21 árs.
Bruce Jenner: Árið 2009 opnaði Jenner sig í viðtali við Access Hollywood og sagði frá því að hann gekkst undir andlitslyftingu og nefaðgerð árið 1984.
Dianna Agron: Glee-stjarnan viðurkennir að hafa farið í aðgerð á nefi. Þessu greindi hún frá í viðtali við David Letterman árið 2011.
Joan Rivers: Grínistinn hefur augljóslega farið í ótal aðgerðir en sjálf hefur hún grínast með að hafa farið í hátt í 700 aðgerðir. En án alls gríns þá gekkst Rivers undir nokkrar nefaðgerðir, aðgerð á augnsvæði, fitusog og andlitslyftingu á sinni lífsleið svo eitthvað sé nefnt.
Tori Spelling: „Ég viðurkenni að hafa farið í aðgerð á nefi, en það er allt og sumt,“ sagði Spelling árið 2000 sem er talin hafa einnig látið stækka brjóst sín á sínum yngri árum þó hún vilji ekki viðurkenna það.
Kourtney Kardashian: Hefur nokkrum sinnum talað opinskátt um brjóstastækkunina sem hún gekkst undir þegar hún var í menntaskóla.
Holly Madison: Fyrrverandi kærasta Hugh Hefner viðurkennir að hafa farið í brjóstastækkun og aðgerð á nefi árið 2009. Þá sagðist hún ekki stefna á að fara í fleiri aðgerðir í bráð. „Kannski þegar ég verð eldri, en ég er góð núna,“ sagði Madison í viðtali við E! News.
Samantektin birtist á heimasíðu E! News.