After the Baby is Born er ljósmyndasería sem samanstendur af svart hvítum ljósmyndum af nýbökuðum mæðrum. Ljósmyndirnar eru hluti af stærra verkefni, The Honest Body Project, sem ljósmyndarinn Natalie McCain stendur einnig fyrir.
Með verkum sínum vill McCain vekja konur til vitundar og sýna kvenlíkamann eins og hann raunverulega er og þar með stuðla að jákvæðari líkamsímynd kvenna.
Mæðurnar sem sátu fyrir á myndunum deildu einnig sögu sinni með McCain, en hverri ljósmynd fylgir persónuleg frásögn móðurinnar.
Fleiri myndir og frásagnir mæðranna má sjá hér.