Forsætisráðherrafrúin Ingibjörg Elsa Ingjaldsdóttir framkvæmdastjóri mætti í svörtum buxum, hvítri skyrtu og í gráum jakka til fundar við Obama-hjónin í hvíta húsinu. Við dressið var hún með svarta fíngerða tösku frá ameríska fatahönnuðinum Michael Kors og í svörtum skóm. Hún hafði hárið í tagli.
Eins og sagði í frétt á mbl.is var létt yfir Sigurði Inga Jóhannssyni, eiginkonu hans og öðrum ráðherrum þegar hópurinn fór í heimsókn til Barack Obama í Hvíta húsið í dag.
Móttaka með fréttamönnum átti að fara fram utandyra í Rósagarðinum en var flutt inn sökum veðurs. Obama sagði að Norðurlandabúar væru nú vanir að glíma við vonskuveður.