Á morgun verður sýning fatahönnuðarins Hildar Yeoman í Lækningaminjasafninu á Seltjarnarnesi. Sýningin ber heitið Transcendence og er hluti af Listahátíð. „Ég er að vinna með staðinn á milli svefns og vöku, þar sem draumar, martraðir og ofsjónir búa,“ segir Hildur um sýninguna sem er samstarf á milli hennar og Sögu Sigurðardóttur, Daníels Björnssonar, Mána Sigfússona, Jófríður Ákadóttur og Valgerðar Rúnarsdóttur.
„Sýningin er annað kvöld, föstudaginn 3. júní kl 20:00. Undirbúningurinn hefur gengið rosalega vel, ég er með svo marga snillinga í liði með mér. Við erum öll að vinna að sama markmiðinu, að skapa heiminn í kringum línuna, draumheiminn.“
Eins og áður sagði fer sýningin fram í Lækningarminjasafninu. „Það er svo fallegt hús og náttúran þar spilar svo stórt hlutverk með arkitektúrnum. Ég er að vinna með íslenska jurtaseið í línunni, draumheimaseiðinn. Sum blómin í honum eru á grasbalanum fyrir utan húsið eins og gleymmérei. Svo eru tengingar við sjóinn og fjöruna ekki langt undan í verkum mínum,“ útskýrir Hildur.
Þess má geta að það er frítt inn á sýninguna Transcendence annað kvöld. „Það eru allir velkomnir, þetta er einstakur gjörningur sem hefst á slaginu 20.00.“