Berglind Ómarsdóttir hélt glæsilega tískusýningu á Oddsson á fimmtudaginn. Berglind var að útskrifast sem kjóla- og klæðskerameistari og ákvað af því tilefni að efna til tískusýningar. Á tískupöllunum mátti sjá litríkar flíkur úr fallegu efni þar sem mikið var lagt í hvert smáatriði.
Þótt Berglind hafi verið að útskrifast núna sem kjóla- og klæðskerameistari er hún alls ekki nýstigin inn í tískuheiminn því hún hefur unnið sem hönnuður í fjöldamörg ár og haldið tískusýningar í Vestmannaeyjum og Lúxemborg þar sem hún bjó og starfaði í sjö ár.