Förðunarfræðingurinn Iðunn Jónasardóttir farðaði Arnhildi Önnu Árnadóttur, sem er ein sterkasta kona Íslands, með vörum frá GOSH fyrir kennslu sem birtist í tískublaði Morgunblaðsins. Iðunn valdi haustlega liti í förðunina og útkoman er rómantísk förðun þar sem jöfn áhersla er lögð á augu og varir.
- Fyrsta skref var að undirbúa húðina. Iðunn notaði Primer Plus+ í verkið, sá farðagrunnur gefur húðinni fallegan ljóma og eykur endingu förðunarinnar.
- Næst setti hún Gosh foundation+ yfir húðina, um farða og hyljari í einni vöru er að ræða. Til að auka á ljómann notaði Iðunn svo Click‘n Conceal-ljómapennann undir augun.
- Til að móta og skyggja andlitið var GOSH Contouring Strobe Kit notað, og einnig notað sem kinnalitur.
- Augabrúnunum var haldið frekar náttúrulegum, þær voru mótaðar lauslega með GOSH Brow Kit.
- Augun voru svo skyggð í svokölluðu „halo“-fomi þar sem miðja augnloksins er ljósari en innri og ytri augnkrókar. Iðunn notaði augnskuggapallettu með níu litum, fjólubláir tónar eru áberandi í þeirri pallettu.
- Því næst voru augun mótuð betur með GOSH Giant Pro Liner-augnlínupennanum. Punkturinn yfir i-ið er svo Lash Sculpting-maskarinn.
- Að lokum voru varirnar mótaðar með varablýant númer 012 Raisin og nýjum lit í Velvet Touch Matte-línunni, sá er númer 013 og ber heitið Cinnamon.
Frétt af Smartlandi: Sjáðu Arnhildi Önnu lyfta 200 kg
Fjólubláir tónar leika stórt hlutverk í þessari pallettu.