Forsetafrú Íslands, Elisa Reid, hefur verið mjög lekker í opinberri heimsókn forsetaembættisins til Svíþjóðar. Hún tjaldar hverjum kjólnum á fætur öðrum. Smartland sagði frá því að hún hefði klæðst vínrauðum kjól frá By Malene Birger og verið með hálsmen við frá íslenska skartgripamerkinu Aurum. Við kjólinn var hún í húðlituðum sokkabuxum og í húðlituðum skóm. Þessi samsetning heppnaðist afar vel.
Síðar um kvöldið, í hátíðarkvöldverði, klæddist hún síðkjól frá spænska merkinu Pronovias. Kjóllinn er með svartri blúndu að ofan en pilsið sjálft er silfrað.
Daginn eftir klæddist Eliza gráum hnésíðum kjól frá Berglindi Ómarsdóttur klæðskera. Berglind hefur oft klætt Elizu og hefur hún skartað fallegum kjólum úr hennar smiðju.
Það voru fleiri sem voru lekkerir til fara. Ágúst Johnson framkvæmdastjóri Hreyfingar, pistlahöfundur á Smartlandi og eiginkona Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra var glæsileg í svörtum blúndukjól frá Eðalklæðum. Kjóllinn var sérsaumaður á Ágústu. Ágústa er hrifin af handbragði því hún var líka í kjól frá þeim í Amalíuhöll í fyrra þegar forsetahjónin fóru í opinbera heimsókn til Danmerkur.