Árlegt átak Menntunarsjóðs Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur hefst í þessari viku. Allur ágóði af sölu Mæðrablómsins rennur í Menntunarsjóðinn sem styrkir tekjulágar konur til menntunar svo að þær eigi betri möguleika á góðu framtíðarstarfi. Frá því að sjóðurinn var stofnaður árið 2012 hafa verið veittir yfir 170 styrkir til 100 kvenna. Eliza Reid forsetafrú lagði verkefninu lið.
Þórunn Árnadóttir hönnuður hannaði nokkrar ólíkar útgáfur af leyniskilaboðakertum. Kertin innihalda skilaboð á bæði íslensku og ensku, tileinkuð mæðrum. Kertin eru í litlum postulínsskálum og þegar kveikt er á þeim og vaxið bráðnar koma smátt og smátt í ljós leyniskilaboð á botni skálarinnar. Skilaboðin standa líka á límmiða utan á pakkningunum sem hægt er að fjarlægja áður en kertið er gefið. Þórunn segist hafa fylgst vel með því mikilvæga starfi sem Mæðrastyrksnefnd hefur verið að vinna undanfarin ár. „Því var mjög gaman að fá tækifæri til að leggja þessu góða málefni lið. Leyniskilaboðakertin eru tilvalin sem „mæðradagsblóm“ og ótrúlega skemmtilegt að fá tækifæri til að gefa þau út á íslensku og með mæðradaginn í huga.“
Eliza Reid forsetafrú valdi skilaboðin sem eru í kertunum.
„Ég kunni vel að meta orðin „Ég skal mála allan heiminn, elsku mamma“ vegna þess að þau endurspegla saklausan og sannan trúnað barns við móður sína og ástina sem tengir þau saman. Með þeim er móðirin ekki sett í einhverja staðalímynd en þau draga fram hvaða augum börn líta einatt móður sína. Og þau eru tekin úr ágætu íslensku barnalagi,“ segir Eliza og bætir við. „Mér þótti mikið til um að vera beðin um að taka þátt í þessu frábæra framtaki. Sú þjálfun og menntun sem maður býr að skiptir sköpum um framgang í vinnu og ekki síður til að tryggja fjárhagslegt sjálfstæði og styrkja sjálfsmyndina. Ég er afar ánægð með þennan sjóð sem liðsinnir konum sem þurfa að stíga skref til að bæta framtíð sína og þar með barna sinna.“
Kertin verða til sölu í öllum búðum Pennans Eymundssonar, í Epal Skeifunni, Hörpu og Kringlunni, og hjá Heimkaup.is í tvær vikur, frá 7.maí. Einnig verða sjálfboðaliðar í Kringlunni helgina 12-13. maí að selja kertin.
Fyrir þau sem vilja styrkja sjóðinn er tekið við frjálsum framlögum í banka: 515-14-407333, kennitala: 660612-1140.
Sjá Facebooksíðu verkefnisins. Nánar um verkefnið hér.