Chloé Ophelia er ljósmyndari búsett í Portúgal. Hún býr í litlum bæ í Algarve með eiginmanni sínu Árna Elliott ásamt tveimur sonum þeirra, þeim Högna Hierónymus og Hyrning Harper. Hér ræðir hún tískuna og segir okkur frá því hvað hún er með í snyrtibuddunni.
„Mér er minnistætt eftir dvöl mína í New York að hafa verið boðið í „show room“ hjá hönnuðum þar sem maður gat verslað.
Báðir foreldrar mínir elska að versla, en við eigum það öll sameiginlegt að vilja gera góð kaup. Ég elska góðar útsölur og blanda hlutum saman. Frá hátískuvörum, í tímabilsfatnað og auðvitað elska ég Primark.“
Chloé segir að það sé alltaf gaman að finna skemmtilegar flíkur.
„En auðvitað elska ég góða hönnuði og hef verið heppin að fá nokkra hluti frá mömmu. Þar sem ég er meira og minna „vegan“ finnst mér oft erfitt að finna fallegar töskur. En ég geri stundum undanþágur.“
„Þar sem ég bý í heitu landi elska ég hör og stuttbuxur. Ég er alltaf á hlaupum með tvo litla stráka eða í vinnunni að taka myndir. Þá verð ég að vera í þægilegum fatnaði. Háu hælarnir eru því löngu komnir upp á hillu og eru notaðir „once in a blue moon “.“
Hvað ertu með í snyrtibuddunni?
„Ég reyni að halda mig við lífrænar snyrtivörur en það getur verið erfitt að finna þær. En ég sé breytingu í átt að meira úrvali á því sviði, sem er gott.
Þar fyrir utan elska ég Chanel hyljarann minn, Guerlain maskarann og nýja uppáhalds matt Silk varalitinn frá Flor Mar.“
Chloé segist hlakka til að koma til Íslands í næsta mánuði en hérlendis fæst mikið úrval af lífrænum snyrtivörum til dæmis frá Inika.
„Ég vil vera með létta og góða förðun, í frjálsum fatnaði. Svona einfalt „chic“ útlit er mitt útlit,“ segir hún.