Vefmiðlar hafa verið duglegir að taka saman lista yfir heitustu knattspyrnumennina á HM í Rússlandi en knattspyrnumenn vekja ekki alltaf bara athygli fyrir hæfileika á vellinum heldur líka fyrir útlitið. Vefsíður stóru tískutímaritanna Elle og Vogue tóku saman lista en enginn af íslensku landsliðsmönnunum komst á listann.
32 komust og því fjöldi knattspyrnumanna töluverður á mótinu. Vogue valdi 15 leikmenn sem þóttu hve mest aðlaðandi en á þeim lista mátti meðal annars finna Argentínumanninn Nicolas Tagliafico en engan Íslending.
Öllu fleiri menn voru taldir upp á lista Elle yfir heitustu menn keppninnar eða 65 alls. Hægt hefði verið að velja tvo frá hverju landi en þrátt fyrir það komst enginn Íslendingur í gegnum nálarauga Elle. Nokkrir Argentínumenn voru þó á listanum sem og nokkrir Króatar