Elísabet Gunnarsdóttir og Gunnar Steinn Jónsson gengu hjónaband í dag. Hún var í sérsaumuðum kjól frá Andreu. Ása Reginsdóttir lánaði henni slörið.
Elísabet hafði ákveðnar hugmyndir um það hvernig kjól hún vildi fá. Andrea Magnúsdóttir sem rekur verslunina Andrea í Hafnarfirði mældi Elísabetu upp og hannaði kjólinn frá A-Ö.
Gunnar Steinn var í fötum frá Suitup Reykjavík sem klæddu hann vel.
Elísabet var í skóm frá Manolo Blahnik en þess má geta að besta vinkona okkar allra, Carrie Bradshaw í Beðmálum í borginni gekk helst ekki í öðru.