Bandaríkjamenn halda þjóðhátíðardag sinn hátíðlegan á hverju ári 4. júlí. Margir klæða sig upp í fánalitunum og það hefur 88 ára gömul amma Dale Cheesman gert í meira en 25 ár. Fjölskylda hennar fattaði það þó ekki fyrr en í ár að bolurinn sem hún hefur klætt sig upp í er gerður eftir fána Panama, ekki Bandaríkjanna.
Ömmubarnið Cheesman deildi þessari fyndnu uppgötvun á Twitter en fjölskyldan komst að uppruna litanna á bolnum í tengslum við HM í knattspyrnu sem fram fer í Rússlandi þessa dagana. Cheesman grínaðist með að amma hans hafi verið föðurlandssvikari í öll þessi ár.
Ömmunni til málsbóta er bolurinn í sömu litum og bandaríski fáninn. Tvær stórar stjörnur eru á bolnum eins og í fána Panama en í bandaríska fánanum eru töluvert fleiri og minni stjörnur.