Ítalska tískuhúsið Gucci sýndi magnaða línu á dögunum sem kemur á markað 2019. Alessandro Michele, yfirhönnuður Gucci, er augljóslega ekki að láta neitt stoppa sig.
Munstur og aftur munstur er það sem koma skal næsta ár. Áhrif frá áttunda áratugnum eru augljós en svo er dálítið sígauna-tvist sem er frekar merkilegt og kannski ekki alveg fyrir alla eins og til dæmis slæður með perlubandi og síð víð pils.
Sólgleraugun eru áberandi og þau gleraugu sem eiga eftir að verða vinsælust eru sólgleraugun með ljósa glerinu. Eða svona sólgleraugu sem hægt er að nota innandyra.
Munstrin hjá Gucci eru afar falleg.
mbl.is/AFP
Svört og hvít sólgleraugu setja svip sinn á heildarmyndina.
mbl.is/AFP
Svartar varir, stór sólgleraugu og húfur verða í tísku á næsta ári.
mbl.is/AFP
Gucci er þekkt fyrir þetta munstur sem er í kjólnum.
mbl.is/AFP
Það er örlítill sígaunafílingur í þessu dressi.
mbl.is/AFP
Blómamunstur eru áberandi.
mbl.is/AFP
Blómamunstur setja svip sinn á línuna.
mbl.is/AFP
Grænt við grænt!
mbl.is/AFP
Húfur og sólgleraugu passa vel saman.
mbl.is/AFP
Mikið er um silkiefni í línunni.
mbl.is/AFP
Leðurjakki og slæða.
mbl.is/AFP
Stíllinn er leiftrandi.
mbl.is/AFP
Þessi Gucci-taska setur svip sinn á heildardressið.
mbl.is/AFP
Skeljar og kross.
mbl.is/AFP
Frumleg sólgleraugu.
mbl.is/AFP