Víetnamska fyrirsætan Ngoc Trinh komst í heimspressuna þegar hún mætti í afar umdeildum kjól á frumsýningu A Hidden Life á sunnudaginn í Cannes. Einhver myndi taka þannig til orða að hún hefði verið verst klædda stjarnan á kvikmyndahátíðinni en sjálf virðist Trinh vera hæstánægð með kjólinn og athyglina.
Kjóllinn sem Trinh klæddist var svartur, gegnsær og afar efnislítill frá merkinu Do Long Boutique. Leit Trinh í raun frekar út fyrir að vera klædd í efnislitla samfellu með þveng en kjól. Voru rasskinnar hennar vel til sýnis og kepptust ljósmyndarar um að mynda rass hennar.
Fjallað hefur verið um Trinh í erlendum miðlum og ekki fyrir að vera best klædda stjarna. Hún er hún dugleg að deila athyglinni sem hún fær á Instagram.