Blátt hár í stíl við dragtina

Dökkbláa kollan fer Cardi B vel.
Dökkbláa kollan fer Cardi B vel. AFP

Rapparinn Cardi B var tignarleg þegar hún mætti til réttarhaldanna í Queens í New York-borg á þriðjudaginn. Hún var með dökkbláa hárkollu í stíl við dökkbláa dragt. 

Cardi B er ákærð í fjórtán ákæruliðum en hún á að hafa fyrirskipað árás á barþjóna á nektardansstað þar í borg í ágúst í fyrra. Hún sagði fyrir dómaranum að hún væri ekki sek um það.

Dragtin fór henni einstaklega vel, en hún er dökkblá með bleikum vösum og kraga. Hún er frá merkinu Brogger og kosta buxurnar og jakkinn saman 2 þúsund Bandaríkjadali eða tæpar 250 þúsund íslenskar krónur. 

Cardi B var með bleikt veski í hönd, sérhannaða Birkin-tösku frá Hermés.

Tvö þúsund dala dragt og handtaska frá Hermés.
Tvö þúsund dala dragt og handtaska frá Hermés. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál