Svona farðaði Heba Margot Robbie

Margot Robbie á frumsýningu Once Upon a Time in Hollywood.
Margot Robbie á frumsýningu Once Upon a Time in Hollywood. mbl.is/AFP

Heba Þórisdóttir starfaði sem yfirförðunarfræðingur í myndinni Once Upon a Time in Hollywood. Hún fékk meðal annars það vandasama verk að skapa útlit leikkonunnar Sharon Tate sem Margot Robbie leikur í myndinni. Heba lýsir því í viðtali við Hollywood Reporter hvernig hún fór að.

Tate er þekkt fyrir að vera mikil tískugoðsögn þrátt fyrir að 50 ár séu frá láti hennar. Ljósa hárið, gerviaugnhárin og svartur augnblýantur er einkennandi fyrir stjörnuna. Heba fór þó ekki auðveldu leiðina og segist hafa leitast eftir að gera Robbie náttúrulega í hlutverki Tate en hún er líka förðuð mjög mikið. 

Heba segist hafa sótt innblástur að augnhára- og augnblýantaútlitinu til Gretu Garbo. Förðunarfræðingur Sharon Tate, Ben Nye, sótti einmitt innblástur til hennar. „Hann farðaði hana fyrir Valley of the Dolls og þegar þú horfir vandlega á eftirminnilegar myndir af Garbo og Sharon er þetta í rauninni sama förðunin,“ sagði Heba í viðtalinu.  

Margot Robbie fer með hlutverk Sharon Tate.
Margot Robbie fer með hlutverk Sharon Tate. mbl.is/AFP

Sharon Tate var kasólétt þegar hún var myrt en Heba segir að hún hafi verið jarðbundnari síðustu mánuðina af lífi sínu. Það sá hún á náttúrulegri tónum auk þess sem hár hennar var að dekkjast og augabrúnirnar voru ekki eins vel plokkaðar og áður. 

Heba notaði Iconolab Renewal-andlitsolíuna til þess að gera húð Robbie tilbúna en hún segir olíuna vera fulla af góðum efnum og vítamínum. Heba er sögð nudda olíunni inn í húð leikara til þess að auka blóðflæðið eða blanda henni saman við farða.  

Hún notaði augnhár frá Red Cherry til þess að endurgera gerviaugnháraútlitið sem Sharon Tate var svo fræg fyrir. 

Á varirnar notaði Heba náttúrulega tóna til þess að gefa augunum meiri athygli. Hún notaði varasalva frá By Terry og varaliti frá Charlotte Tilbury sem kallast Hepburn Honey og Bitch Perfect. 

Varaliturinn Bitch Perfect frá Charlotte Tilbury.
Varaliturinn Bitch Perfect frá Charlotte Tilbury.
Hepburn Honey frá Charlotte Tilbury.
Hepburn Honey frá Charlotte Tilbury.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál