Alexandra Helga Ívarsdóttir, eiginkona Gylfa Þórs Sigurðssonar og fyrrverandi fegurðardrottning, ætlar að selja af sér spjarirnar í Trendport á Nýbýlavegi í vikunni. Alexandra greindi frá fatasölunni á Instagram. „Verð með bás hjá TrendportIsland í vikunni,“ skrifaði Alexandra og hvatti fólk til þess að fylgjast með.
Íslenska landsliðið kom saman í vikunni og hefur Alexandra ákveðið að grisja aðeins í skápunum á meðan Gylfi undirbýr sig fyrir landsleikina.
Alexandra og Gylfi giftu sig á Ítalíu í sumar og var Alexandra sérstaklega glæsileg í fallegum brúðarkjól. Það er enn óvíst hvað Alexandra hyggst selja en það verður að teljast ólíklegt að brúðarkjóllinn verði þar á meðal. Hún á þó nóg af fallegum fötum og merkjavöru til þess að selja.