Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra Íslands er ásamt öðrum þjóðarleiðtogum í Lundúnum á fundi Atlantshafsbandalagsins. Katrín var í sínu fínasta pússi á þriðjudagskvöld þegar hún heilsaði Elísabetu Bretadrottningu í Buckingham-höll og snæddi kvöldverð í Downingstræti 10 í boði breska forsætisráðherrans. Var hún með sjal sem aðdáendur Katrínar kannast vel við.
Sjal Katrínar gerði klæðnað hennar afar hátíðlegan og jólalegan. Sjalið er nokkuð kunnuglegt en svo vill til að Katrín hefur áður notað það þegar hún hefur átt fund með þjóðarleiðtogum. Í desember 2017 var Katrín mynduð með Emmanuel Macron Frakklandsforseta í París með sjalið góða.
Samkvæmt heimildum Smartlands er sjalið gjöf frá mágkonu Katrínar. Það er nokkuð ljóst, miðað við tækifærin sem Katrín hefur skartað sjalinu, að það er í miklum metum hjá forsætisráðherra.
Fréttin hefur verið uppfærð.