Ekki eru allar stjörnur sem vilja viðurkenna að hafa farið í fegrunar- eða lýtaaðgerir. Það eru þó sumar sem hafa talað um það eins og fram kemur á vef Us Weekly. Sumar stjörnur eru ánægðar með þær aðgerðir sem þær hafa farið í á meðan aðrar sjá eftir þeim.
Jessica Simpson
Í sjálfsævisögunni Open Book greinir Simpson frá magaminnkunaraðgerðum sem hún fór í árið 2015. Vildi söngkonan fjarlægja slitför og lausa húð eftir að hafa eignast tvö börn á stuttum tíma. Segist hún hafa skammast sín fyrir líkama sinn.
Sharon Osbourne
Raunveruleikastjarnan hefur farið í fjölda lýtaaðgerða og skammast sín ekki fyrir það. Síðasta sumar lét hún lagfæra á sér andlitið og greindi frá því opinberlega.
Cardi B
Rappkonan er þekkt fyrir hreinskilni og greindi frá því að hún hefði látið lyfta brjóstunum og farið í fitusog tæpu ári eftir að hún eignaðist sitt fyrsta sumarið 2018.
Courteney Cox
Friends-leikkonan hefur talað opinberlega um fegrunaraðgerðir sem hún fór í á tímabili. Eins og algengt er gekk hún of langt. Árið 2017 greindi hún frá því að fyllingarnar í andlitinu væru farnar. Hún væri eins náttúruleg og hún gæti verið og ánægðari fyrir vikið.
Kylie Jenner
Jenner er þekkt fyrir stórar varir og er það ekki bara snyrtivörum hennar að þakka. Hún hefur oft látið sprauta í varir sínar. Hún hefur lítið talað um aðrar aðgerðir.
Jane Fonda
Hin 82 ára gamla leikkona hefur talað opinskátt um þær fegrunaraðgerðir sem hún hefur farið í. Sagðist hún eitt sinn óska þess að hún hefði verið nógu hugrökk til þess að fara ekki í fegrunaraðgerðir.
Ariel Winter
Ólíkt mörgum stjörnum fór Modern Family-leikkonan Ariel Winter ekki í brjóstastækkun heldur í brjóstaminnkun. Þegar hún var 17 lét hún minnka brjóstin á sér og hjálpaði það henni að vinna bug á bakverkjum auk þess sem sjálfstraust hennar jókst.
Kelly Rowland
Destiny's Child-söngkonan Kelly Rowland lét stækka á sér brjóstin. Hún var ekki nema 18 ára þegar hugmyndin kom upp en móðir hennar og móðir Beyoncé hvöttu hana til að bíða. Tíu árum seinna tók hún meðvitaða ákvörðun um að fara í brjóstastækkun.
Ashlee Simpson
Söngkonan lét laga á sér nefið. Fór það ekki fram hjá aðdáendum hennar. „Svo lengi sem þú ert með tvö augu veist þú líklega svarið,“ sagði Simpson eitt sinn þegar hún var spurð út í breytingarnar á nefinu.