Skiptu um kjóla fyrir eftirpartíið

Scarlett Johansson, Gal Gadot, Sandra Oh og Billie Eilish skiptu …
Scarlett Johansson, Gal Gadot, Sandra Oh og Billie Eilish skiptu allar um kjóla fyrir partýið hjá Vanity Fair.

Óskarsverðlaunahátíðin er yfirleitt hápunktur ársins þegar kemur að kjólum á rauða dreglinum. Ekki síðra er partíið sem Vanity Fair heldur eftir verðlaunahátíðina. Margir skipta um föt fyrir partíið og velja aðeins meiri „partífatnað“ þótt flestir kjólarnir hefðu sómt sér líka fyrr um kvöldið. 

Leikkonan Scarlett Johansson skipti um kjól og fór úr hlýralausum kjól yfir í kjól sem náði yfir aðra öxlina. Báðir kjólarnir eru gullfallegir og báðir frá Oscar de la Renta.

Leikkonan Gal Gadot skipti úr svörtum og bleikum blúndukjól yfir í svartan pallíettukjól. Írska leikkonan Caitriona Balfe skipti, sem betur fer, úr bleika og svarta kjólnum yfir í rauðan kjól. 

Grey's Anatomy-stjarnan Sandra Oh fór úr bleika púffkjólnum yfir í silfurglimmerkjól með fjaðrakraga. Hin 18 ára gamla Billie Eilish fór úr hvítri Chanel-dragt yfir í svarta.

Florence Pugh fór úr gullfallega græna kjólnum sínum og í gylltan kjól og Billy Porter skipti algjörlega um litapallettu.

Scarlett Johansson.
Scarlett Johansson. Samsett mynd
Gal Gadot.
Gal Gadot. Samsett mynd
Sandra Oh.
Sandra Oh. Samsett mynd
Billie Eilish.
Billie Eilish. Samsett mynd
Caitriona Balfe.
Caitriona Balfe. Samsett mynd
Florence Pugh.
Florence Pugh. Samsett mynd
Billy Porter.
Billy Porter. Samsett mynd
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál