Fjölmiðlastjarnan Auðunn Blöndal hefur nýtt samkomubann og lokun hársnyrtistofa til þess að safna hári. Auðunn hefur skartað skalla síðastliðinn áratug og því voru það mikil viðbrigði fyrir hann að fara safna hári.
Ansi strjálbýlt er hárið efst á höfði Auðuns en með aðstoð þurrsjampó með lit frá label.m (Brunette Dry Shampoo) tókst honum að bæta ásýnd hársins til muna. Það mætti segja að Auðunn sé óþekkjanlegur með hárið sem hann safnaði í samkomubanninu.
Auðunn sýndi frá hárævintýrinu á Instagram í gær og sagðist vera spenntur að greiða á sér hárið í fyrsta skipti í mörg ár. Hann byrjaði á að nota gel en gekk illa að gera greiðslu í það. Að lokum prófaði hann þurrsjampóið frá label.m og var einstaklega ánægður með útkomuna.
Þurrsjampóið er það sama og ritstjóri Smartlands notaði með góðum árangri í samkomubanninu.