Djammtoppar Hildar slá í gegn

„Við erum að fagna nýju línunni okkar Cheer up! í Yeoman á HönnunarMars og okkur þetta einnig fullkomið tilefni til þess að láta gott af okkur leiða,“ segir Hildur Yeoman fatahönnuður og eigandi Yeoman. 

í Nýju línunni er mikið af skemmtilegum toppum og  bjuggum við til sérstaka útgáfu fyrir málstaðinn, djammtoppa úr efni sem féll til við fyrri framleiðslu. Rennur ágóðinn óskertur til UN Women, til kvenna á flótta.

„Við framleiðum alltaf í litlu magni, en stundum nýtast efni illa og litlir bútar falla til. Við hendum að sjálfsögðu aldrei efnum heldur nýtum þau í allskonar skemmtileg verkefni eins og þetta. Þetta eru pallíettu djammtoppar, fullkomið skvísupís fyrir sumarið.

Við gerðum þrjá mismunandi liti og koma þeir í mjög takmörkuðu upplagi,“ segir Hildur en topparnir eru til sölu í verslun Yeoman við Skólavörðustíg 22B.

Á meðan á HönnunarMars er boðið upp á léttar veitingar í versluninni og er einnig hægt að tryggja sér happdrættismiða. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda