Himnasending ef þú vilt prófa annan hárlit án þess að lita hárið varanlega

Litasjampó og litanæring hafa notið mikilla vinsælda upp á síðkastið. Baldur Rafn Gylfason hjá heildsölunni bpro segir að næringin sé sniðug fyrir þá sem vilja prófa að breyta um háralit án þess að um varalega breytingu sé að ræða. Í Alchemic-línunni eru sex grunnlitir af sjampói og hárnæringu og heita litirnir golden, chocolate, copper, red, tobacco og silver. Í Alchemic creative-línunni, sem er bara næring, ekki sjampó, eru litirnir teal, lavender, coral, pink og marine blue. 

Baldur Rafn segir að þetta sé góð leið til að fríska aðeins upp á hárlitinn án þess að taka of mikla áhættu. Um er að ræða tímabundinn árangur en litasjampóið og -næringin auka styrk hársins og gefur efnið djúpan raka. Það góða við þessi efni er að þau innihalda engin paraben eða sílikon.

Litasjampóið og hárnæringin er fyrir ljóst hár, bæði náttúrulegt og litað. 

Best er að bera jafnt í rakt hár og láta bíða í 5-8 mínútur, svo er greitt í gegn og skolað úr.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda