Stjörnuparið Sophie Turner og Joe Jonas fagnaði tveggja ára brúðkaupsafmæli nú á dögunum. Í tilefni dagsins birti Turner fjölda mynda úr brúðkaupinu sem hún hafði ekki deilt með aðdáendum sínum áður.
„Ég meina, fjandinn, það eru liðin 2 ár,“ skrifaði Turner við myndirnar á Instagram.
Game of Thrones-stjarnan og Jonas Brothers liðsmaðurinn gengu í það heilaga lögunum samkvæmt í Las Vegas árið 2019. Óformleg athöfn og brúðkaupsveislan var hins vegar haldin í Frakklandi en parið þurfti að fara þessa leið þar sem ekki er hlaupið að því fyrir erlenda ríkisborgara að ganga löglega í hjónaband í Frakklandi.
Turner og Jonas leigðu Chateau de Tourreau-villuna í Sarrians í Frakklandi fyrir veisluna.