Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra voru í stíl þegar þær tóku flug austur á Egilstaði nú eftir hádegi í dag. Tilefni ferðarinnar er fundur ríkisstjórnarinnar að Hótel Valaskjálf klukkan 16.
Báðar klæddust þær ljósum buxnadrögtum, sem eru einstaklega sumarlegar og fallegar. Þær passa vel við veðurblíðuna sem hefur leikið við íbúa á Austurlandi undanfarnar vikur.
Þórdís og Áslaug klæddust báðar mokkasíum við dragtirnar, Þórdís grænum rúskinns mokkasíum og Áslaug svörtum úr leðri.
Smartland fór á stúfana og fann sambærilegar buxur, jakka og skó svo lesendur geti stolið stíl ráðherranna.