Steldu stílnum af Gumma kíró

Guðmundur Birkir Pálmason í samstæðu setti frá Burberry.
Guðmundur Birkir Pálmason í samstæðu setti frá Burberry. Skjáskot/Instagram

Kírópraktorinn Guðmundur Birkir Pálmason, betur þekktur sem Gummi kíró, er mikill smekkmaður þegar kemur að vönduðum fötum og fylgihlutum. Guðmundur fór nýverið til Parísar í Frakklandi ásamt kærustu sinni, athafnakonunni Línu Birgittu Sigurðardóttur, og virðast þau hafa nælt sér í eitt og annað frá stærstu tískuvörumerkjum heims.

Í París birti Guðmundur til dæmis mynd af sér í einstaklega töff, samstæðu stuttbuxnasetti frá Burberry. Settið má kaupa á vef Burberry en bolurinn kostar 72 þúsund krónur og stuttbuxurnar 67 þúsund krónur. 

Guðmundur í bol frá Gucci.
Guðmundur í bol frá Gucci. Skjáskot/Instagram

Kírópraktorinn virðist einnig vera hrifinn af Gucci og birti mynd af sér í stuttermabol frá merkinu við Eiffel-turninn. Sambærilegan bol má finna á vef My Theresa en hann kostar 43 þúsund krónur. Peysu með eins merki og á stuttermabol Guðmundar er einnig að finna á vefnum og kostar hún 97 þúsund krónur. 

Guðmundur á einnig hneppta kósípeysu frá Gucci sem hann klæddist meðal annars í ferð parsins á Hótel Geysi. Peysuna má finna á My Theresa og kostar hún 160 þúsund krónur.

Peysan er frá Gucci og kostar 160 þúsund.
Peysan er frá Gucci og kostar 160 þúsund. Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda