Flauelsjakkar eru að ryðja sér til rúms í herratískunni í ár og fór það ekki framhjá neinum sem fylgdist með fréttum af frumsýningu Bond-myndarinnar No Time to Die en Daniel Craig bar af í bleikum flauelsjakka. Þá hefur Vilhjálmur prins ítrekað klæðst svörtum flauelsjakka við fínni tækifæri að undanförnu.
Jakki Daniels Craigs hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum og sitt sýnist hverjum um djarft litavalið. Margir vilja meina að aðeins Bond sjálfur geti komist upp með að mæta í bleikum jakka. Jakkinn umtalaði var hannaður sérstaklega fyrir Craig og er frá breska merkinu The Anderson & Sheppard í Mayfair í London.