Gætir þú farðað þig í bíl og unnið keppnina?

Make up er glæný íslensk þáttaröð í umsjón Kristínar Pétursdóttur leikkonu. Í þáttunum taka sex efnilegir förðunarfræðingar frumlegum áskorunum og leysa fjölbreytt verkefni úr heimi förðunar. 

Keppendur leggja allt í sölurnar til að ganga í augun á álitsgjöfum og sérfræðingum sem fylgjast grannt með öllu sem gerist. Förðunarfræðingarnar Heiður Ósk og Ingunn Sigurðar, eigendur Reykjavík Make Up School, eru álitsgjafar og í hverri viku fá þær kunnan gestasérfræðing með sér í lið.

Make up kemur í Sjónvarp Símans Premium fimmtudaginn 24.mars.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda