Julian Assange, stofnandi Wikileaks, gekk í hjónaband með unnustu sinni og barnsmóður, Stellu Moris, í bresku fangelsi í dag. Moris var í glæsilegum brúðarkjól þrátt fyrir napurlegar aðstæður brúðkaupsins.
Assange og Moris tilkynntu um trúlofun sína í nóvember og fengu þau leyfi til þess að ganga í hjónaband í Belmarsh-fangelsinu í Lundúnum. Moris er á fertugsaldri á tvo unga syni með Assange. Gestum var gert að yfirgefa fangelsið eftir trúlofunina.
Moris var mynduð á leiðinni í fangelsið en hún klæddist hönnun Vivienne Westwood. Westwood sem er þekkt fyrir pönkaðan stíl hefur studd Assange lengi og var því kjólavalið við hæfi. Handskrifuð orð voru skrifuð á slör Moris. Brúðurin er af skoskum ættum og komu skotapils við sögu í brúðkaupinu eins og hefð er fyrir.