Raunveruleikastjarnna og athafnakonan Kylie Jenner sýndi á dögunum nokkuð athyglisverða handtösku. Um er að ræða handtösku úr gleri og er hún sögð sú vinsælasta á meðal stjarnanna í dag.
Jenner sýndi töskuna þegar hún auglýsti nýja línu undir vörumerki sínu Kylie Cosmetics á Instagram. Í töskunni var hún aðeins með tvö stykki af glossi frá merkinu.
Handtaskan er eins sú vinsælasta í Hollywood um þessar mundir en hún er frá glervöruframleiðandanum Heaven og er framleidd í samstarfi við merkið Coperni. Handtaskan var frumsýnd á tískusýningu Coperni í mars á þessu ári og er í haustlínu merksins.
Jenner valdi sér glæra útgáfu en tónlistarkonan Doja Cat hefur einnig sést með eins tösku, en hennar var í ljósbláum lit.