Besta lagið er ekki eina sem skiptir málið í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, það skiptir líka máli að vera smart á sviðinu. Í meira en tvo áratugi hafa æstir aðdáendur valið ljótustu búningana en í ár verður breyting þar ár. Verðlaunin kennd við Barböru Dex hafa verið lögð niður.
Aðdáendasíðan Songfestivalen.be greindi frá því í mars að Barbara Dex-verðlaunin yrðu ekki afhent í ár. Verðlaunin heita eftir hinni belgísku Barböru Dex sem tók þátt í Eurovision fyrir Belga árið 1993. Verðlaunin hafa hingað til verið veitt fyrir verst klæddu keppendurnar og þykja almennt neikvæð. Rauði samfestingurinn sem Selma Björnsdóttir klæddist í Kænugarði árið 2005 sló ekki í gegn og lenti í öðru sæti hjá verðlaunanefndinni það árið.
Songfestivalen.be tók yfir verðlaunin árið 2017 og reyndi að endurskapa ímynd þeirra með því að breyta orðræðunni í kringum verðlaunin. Í stað þess að velja verstu búningana var reynt að velja athyglisverðustu búningana.
Nýju verðlaunin heita You're A Vision-verðlaunina og eiga að vera á jákvæðum nótum. Verðlaunin verða veitt fyrir búninga sem vekja athygli, segja sögu og hafa einhverja þýðingu.
Í tilefni breyttra og jákvæðari tíma er um að gera að fara yfir búninga sem hafa vakið sérstaka athygli verðlaunanefndar Barböru Dax í gegnum tíðina.