Þórdís Kjartansdóttir, lýtalæknir á Dea Medica, svarar spurningum lesenda Smartlands. Hér fær hún spurningu frá konu sem veltir fyrir sér hvort það sé nauðsynlegt að léttast fyrir svuntuaðgerð.
Sæl Þórdís.
Ef ég er ekki í kjörþyngd og vil fara í svuntuaðgerð, er nauðsynlegt að léttast fyrir aðgerðina?
Kær kveðja,
MN
Sæl MN.
Ég mæli alltaf með að vera sem næst sinni kjörþyngd þegar framkvæmd er svuntuaðgerð. Ef einhver aukakíló eru til staðar, þá skiptir máli hvar þessi kíló liggja! Ef um innanfitu (innan við vöðvalög) er að ræða, þá verður stundum árangurinn af svuntuaðgerð ekki góður. Þá getur „efri maginn“, maginn ofan við naflann, orðið framstæður.
Kær kveðja,
Þórdís Kjartansdóttir lýtalæknir.
Liggur þér eitthvað á hjarta? Þú getur sent Þórdísi spurningu HÉR.