Enok Jónsson athafnamaður klæddist rauðri Hugo Boss peysu á frumsýningu raunveruleikaþáttanna um LXS stelpurnar. Peysan vakti athygli blaðamanna Smartlands, en eins peysa var áberandi á síðum fjölmiðla í síðustu viku.
Þá klæddist Reynir Finndal Grétarsson, stjórnarformaður InfoCaptal, peysunni þegar hann greiddi upp skuld Samtakanna '78.
Peysan fékkst í Hugo Boss búðinni í Kringlunni. Hún virðist þó vera svo vinsæl að hún er nú uppseld.