Græni liturinn ruddist inn í tískuheiminn með látum. Hann er áberandi í verslunum bæði hérlendis og erlendis. Það er fallegt að vera í grænu frá toppi til táar og grænu tónarnir þurfa ekki að vera nákvæmlega eins. Það má blanda þeim saman án þess að umhverfið haldi að fólk sé litblint. Stutt pils, útvíðar buxur og stígvél setja svip sinn á vetrartískuna ásamt munstruðum kjólum. mm@mbl.is
Græni liturinn ruddist inn í tískuheiminn með látum. Hann er áberandi í verslunum bæði hérlendis og erlendis. Það er fallegt að vera í grænu frá toppi til táar og grænu tónarnir þurfa ekki að vera nákvæmlega eins. Það má blanda þeim saman án þess að umhverfið haldi að fólk sé litblint. Stutt pils, útvíðar buxur og stígvél setja svip sinn á vetrartískuna ásamt munstruðum kjólum.