Áhrifavaldurinn Lottie Tomlinson birti nýverið mynd á Instagram-reikningi sínum þar sem hún sýndi afrakstur þess að láta leysa upp öll fyllingarefni í andliti sínu.
Tomlinson, sem er 24 ára gömul, hefur deilt ferlinu með fylgjendum sínum, en hún greindi fyrst frá því í byrjun nóvember að hún hefði hafið ferlið í von um „náttúrulegra“ útlit.
Tomlinson hefur hlotið mikið lof á samfélagsmiðlum fyrir þá ákvörðun sína að segja skilið við fegrunaraðgerðir og taka sitt náttúrulega útlit í sátt. Í færslu sinni þakkaði hún snyrtistofunni sem sá um ferlið kærlega fyrir.
„Takk fyrir að veita mér náttúrulega andlitið mitt aftur. Eftir að hafa verið með fyllingarefni í mörg ár ákvað ég að láta leysa þau upp. Þetta er ein besta ákvörðun sem ég hef tekið,“ skrifaði áhrifavaldurinn við færsluna.
Til þess að leysa upp fyllingarefni er ensím sem kallast hayluronidase notað, en efnið brýtur fyllingarefnið niður og flýtir þar með fyrir upplausnarferlinu sem myndi annars eiga sér stað með tímanum.
Tomlinson virðist alsæl með ákvörðun sína og óhætt að segja að hún geisli af gleði á nýjustu myndum sínum. Þegar hún hóf ferlið sagðist hún vera „kvíðin en spennt fyrir því að verða eðlilegri.“